Breytingar á tenglum

Ég tók annað skref í átt að framtíðarheldum tenglum. Breytti tenglum í daga og mánuði samkvæmt forskriftinni, ég hef ekki verið að nota daga hingað til en mánuðirnir hafa verið uppfærðir í yfirliti tenglasafns sem var líka fært úr BLOG_rót/archives.html yfir í BLOG_rót/archives/index.html, a.k.a. BLOG_rót/archives/. Ég ákvað að leyfa Google og félögum bara að komast að þessum tilfæringum ,,the hard way” þar sem ég hef litlar áhyggjur af PageRank eða dauðum linkum á þessar síður. Sömu leið fóru yfirlitssíður fyrir flokka (categories) og eru þeir nú ekki á forminu BLOG_rót/archives/cat_NAFN.html heldur BLOG_rót/archives/NAFN/index.html. Þarna gerði ég reyndar varanlega framvísun í Apache fyrir alla flokkana til að gefa leitarvélum og öðrum skriðkvikindum merki um að síðurnar hefðu verið færðar til.
Ég lenti reyndar í smávandræðum með ,,hakkanleikann” á BLOG_rót/archives/ÁR/ ég vildi síður leyfa Apache að búa til indexinn fyrir skráasöfn hjá mér og tók því freker upp á því að gera framvísun frá BLOG_rót/archives/ÁR/index.html yfir í BLOG_rót/archives/index.html. Þar sem fjöldi ára er mjög viðráðanleg stærð er þetta þolanlegt skít-mix þangað til önnur betri lausn finnst.
Ég losaði mig líka við leiðinlega pop-up gluggann sem var þegar ýtt var á Umræða á yfirlitunum. Sá tengill vísar nú í umræðuhlutann af ,,varanlegu” slóðinni.
Eftir standa stöku færslurnar (individual archives) og það er í raun stóri höfuðverkurinn. Í raun ef vel ætti að vera þyrfti ég að búa til varanlega framvísun fyrir hverja og eina af þessum 739 skrám sem heita NNNNNN.html yfir í eitthvað gáfulegra URL sem er byggt á tíma hverrar færslu. Enn sem komið er sé ég þetta ekki sem nógu stórt vandamál til að komast í kringum þetta og læt því hér staðar numið í bili.

4 Responses to “Breytingar á tenglum”

  1. Einfaldasta lausnin er líklega sú að búa til nýtt “Individual Entry Template” sem prentar út HTML skjöl á forminu nnnnnn.html og yfirskrifar gömlu færslusíðurnar. Þessar síður væru næstum tómar og það eina sem þær innihéldu væri stutt tilkynning um að viðkomandi slóð sé úrelt, með einfaldri HTML vísun á nýju slóðina.
    Svo læturðu MT skrifa út þessar síður einu sinni og eyðir svo “Template” kóðanum úr MT, en passar bara að eiga alltaf backup af þessum tæplega þúsund hálftómu HTML skrám.
    Kosturinn við þessa aðferð er sá að hún er næstum því 100% viðhaldsfrí og gerir engar kröfur til vefþjónsins. Skrárnar taka bara smá diskpláss.

  2. Trigger til framtíðar

    Tryggvi var rétt í þessu að breyta vefslóðunum í dagbókinni sinni í takt við það sem ég lýsi í hinni geysivinsælu færslu “Future-proof URLs in Movable Type”. Með þessu er Tryggvi búinn að negla vefslóðir dagbókarinnar sinnar niður í form…

  3. Meiri breytingar á tenglum

    Eftir snilldarráð frá Má tók ég skrefið til fulls og breytti varanlegu slóðunum í stöku færslurnar hjá mér í framtíðarhelt form. Nú er bara að hreinsa upp smá subbuskap hér og þar og þá er þetta tilbúið. Það var mjög auðvelt að…

  4. Varðveisla íslenskra vefsiða

    Ég fór á fræðslufund í Þjóðarbókhlöðunni á vegum Félags um skjalastjórnun í hádeginu. Samkvæmt lögum um skylduskil ber Landsbókasafni (Lbs.) skylda til að varðveisla þær vefsíður sem gefnar eru út og birtar á Íslandi eða eins og það er kallað Verk á…