TrackBack úr iTunes

Fyrst ég var búinn að græja þetta í Winamp fannst mér alveg nauðsynlegt að fá það sama til að virka í iTunes á MacOS líka. Aftur fann ég ágætar leiðbeiningar um Trackback og iTunes og þar er Applescript sem þarf að breyta einni línu í, þ.e. urlinu sem græjan sendir. Þegar búið er að breyta því til samræmis við leiðbeiningarnar fyrir Winamp og Trackback þá er ekkert eftir nema keyra þetta upp.
Þessi scriptstubbur er reyndar öðruvísi en Winamp lausnin þar sem þetta keyrir með ákveðnu millibili og spyr iTunes hvað það sé að spila, ég stillti þetta á 90 sec hjá mér þannig að það ætti að ná flestum lögum. Formið á trackkbackinu er hins vegar nákvæmlega eins og í Winamp lausninni.
Það er náttúrulega ekkert einfaldara en að keyra þetta upp þegar maður loggar sig inn og þarf ekki einu sinni að vera sýnilegt. Það væri samt sniðugt að geta keyrt þetta upp með sudo sem maður sjálfur í start-upinu á vélinni. Sjá nánar um ræsingu á þessari síðu.

2 Responses to “TrackBack úr iTunes”

  1. Meira skipulag, meira helvíti!

    Í tilefni af tiltekt minni um helgina þá fór ég aðeins yfir flokkunina á vefdagbókinni minni. Kvikmyndir áttu sérstakan flokk síðan í júní en mér finnst eins og tónlistin spili stærra hlutverk en kvikmyndirnar. Því ákvað ég að fara að nota music…

  2. TunA

    TunA er on-the-fly-peer-to-peer-tónlistar-deilipæling sem er ferlega sniðug. Ætli þetta verði samt nokkurn tíma