Helgin fór í algeran dugnað! Byrjaði eftir vinnu á föstudagskvöldið að ganga frá handföngum og læsingum á hurðirnar, laugardagurinn fór svo í að rusla til kössum, flokka, merkja og fara með drasl niður í kyndiklefa úr bílskúrnum og tókst mér að koma bílnum inn fyrir lok dags! Harla gott afrek það. Á sunnudaginn var svo ágætur dugnaður líka en í smærri og afmarkaðari hlutum. Afraksturinn er samt ágætur og eftir mikla vinnutörn var ágætt að komast í aðeins annan gír og skilja vinnuna alveg eftir, í vinnunni. Planið er svo að klára flísalögnina á baðinu (eftir framan á vatnskassann) á föstudaginn og jafnvel reyna að fara að láta sér detta í hug að finna spegil til að skella á vegginn og eitthvert sniðugt veggljós með.
Mánuðurinn er svo hægt og rólega að klárast og í október er stefnan tekin m.a. á 50. ára afmælisfagnað mömmu í Reykjavík. Það verður síðan nóg að gera bæði á vinnuvígstöðvunum og svo ver ég líka að kenna hluta af námi viðurkenndra bókara bæði í Reykjavík og á Akureyri þrjú mánudags- og föstudagskvöld í mánuðinum og þarf svo að halda próf fyrir allan hópinn um mánaðamótin. Þetta er þó sama og í fyrra þannig að þetta ætti að vera tiltölulega þægilegt.