Við höfum verið að skammta okkur verkefnin núna á helgarnar til að reyna að klára hluti fyrir Jól. Það gengur ágætlega og í dag náðist að klára vinnuherbergið. Við versluðum svefnsófa og fórum með gamla rúmið niður í kjallara og versluðum það sem flestir myndu kalla borðstofuborð en við höfum ákveðið að kalla vinnuborð. Þetta er 140×90cm borð (stækkanlegt en stækkun fylgir ekki) og með tölvuborði við hliðina þá er þetta alveg nothæf vinnuaðstaða fyrir tvo. Þar sem það er búið að bóka gistingu á öllum hæðum um Jólin var ágætt að fjárfesta líka í svefnsófa og koma gamla rúminu niður. Leigjandinn okkar þar sagði upp leigunni og verður íbúðin því tóm í desember en við ætlum að nýta okkur það til að hýsa ættingja um Jólin. Sjá svo til með að finna bara leigjanda til vorsins og hafa hana jafnvel tóma í sumar líka (með einhverjum lágmarkshúsgögnum) til að taka við gestum og gangandi sem verða á þvælingi. Gestagangurinn reyndar byrjar um næstu helgi en þá eru markmiðin s.s. ekki háleit en það á að ganga frá aðeins í herberginu hjá Hartmanni (málning og gólflistar). Það er svo alveg eftir að ganga frá ljósamálunum, ennþá dálítil austantjaldsstemming hjá okkur í þeirri deildinni.