Árið 2009 byrjaði á nýjum stað en í lok ársins 2008 flutti ég norður. Janúar og febrúar gengu nokkuð tíðindalaust. Ég var í vikulegum ferðum suður vegna vinnu og stoppaði að jafnaði tvo daga sem jók ágætlega nýtinguna á gestaherberginu hjá mömmu. Við Valdís vorum dugleg að fara á tónleika, sáum Ljótu hálfvitana í janúar og 200.000 naglbíta. Mars einkenndist svo af undirbúningi fyrir áætlaða komu erfingjans (sem var 26. mars) en snáðinn litli (lét bíða eftir sér alveg til 7. apríl og kom þá í heiminn eftir keisaraskurð. Við eyddum fyrstu vikunni (þ.m.t. páskunum) á FSA vegna sýkingar og fékk hann sýklalyf í æð tvisvar á sólarhring á barnadeildinni. Þó það hafi auðvitað ekki verið draumastaðan er ekki hægt að segja annað en að starfsfólk FSA sé ekkert minna en frábært. Við byrjuðum svo maí á því að gefa drengnum nafnið Hartmann Völundur annars vegar í höfuðið á langafa sínum Hartmanni Eymundssyni og seinna nafnið kemur aðallega til vegna þess að hann var svo duglegur með hendurnar á sér strax frá fæðingu.
Ég tók ágætis slurk af fæðingarorlofi sem kom sér vel því að í lok maí seldist Öldugrandinn svo sem ekki á þann pening sem maður vildi fá fyrir hann en nóg til þess að við sett boltann í gang og buðum í Ásveg 20 í byrjun júní og fengum tilboð samþykkt að lokum. Afhending á því var svo 15. júlí og margt sem þurfti að gera og græja. Til lánsins tók ég mér sumarfrí/fæðingarorlof mestallan júní,júlí og fram í ágúst og var tíminn notaður að endurbæta nýja heimilið, stækka baðherbergi, rífa niður veggi, sameina fataskápa og mála heilan heilling. Þessar framkvæmdir kláruðust að mestu í byrjun ágúst en við fluttum inn 25. júlí og afhentum Tjarnarlundinn til leigjenda 1. ágúst og það tókst að afhenda Öldugrandann til kaupandans 21. júlí. Afsölin af þessum eignum voru svo 1. og 2. október og eftir talsvert þvarg tókst að ganga frá sölunni en kaupin gengu án allra vandræða.
Þegar fór að draga að hausti urðu talsverðar breytingar á vinnustaðnum mínum sem juku dálítið á Reykjavíkurdvölina hjá mér (oft 3 dagar í viku) en við gerðum líka ýmislegt annað eins og að fara í ungbarnasund með Hartmann sem var mjög skemmtilegt. Í október tók ég svo að mér eins og í fyrra kennslu í opna háskólanum hjá HR og í þetta skiptið tók ég þetta einn og í þokkabót var efnið kennt bæði í Reykjavík (mánudagskvöld) og á Akureyri (föstudagskvöld). Það var því ágætis sprettur og talsvert álag ofan á allt annað. Í desember þreytti ég CISA prófið og fæ vonandi niðurstöðuna öðru hvoru megin við mánaðamótin jan/feb 2010. Í desember náðist svo að selja Tjarnarlundinn sem eru miklar gleðifréttir á þessum síðustu og verstu tímum auðvitað. Eins og með Öldugrandann var verðið auðvitað of lágt en léttirinn mikill að vera laus við allan þennan fasteignarekstur. Það urðu svo leigjendaskipti í kjallaranum hjá okkur líka en íbúð stóð tóm í desember og kom hún sér ágætlega til að hýsa gesti.
Þetta var óneitanlega viðburgðaríkt ár með breytingum á flestum sviðum lífs míns en samt má segja að það hafi verið stærri viðburðir frekar en magnið. Við enduðum árið aldrei þessu vant á okkar eigin heimili og fengum til okkur Mömmu, Díönu systur og Nonna yfir hátíðirnar en tengdó fóru til Danmerkur með Rögnu og voru þar um hátíðirnar. Við tókum auðvitað gamlárskvöldið í Ásveginum þar sem er ágætis stemming. Landsbjörg var styrkt aðeins þetta árið, vonandi meira á næsta ári.
Það verður örugglega engin lognmolla á árinu 2010 frekar en fyrri daginn, fyrri hluti árs verður örugglega brattur á öllum sviðum og það er ekki hægt að segja annað en að það sé nóg að gera og því örugglega stutt þangað til maður sest niður á næsta nýársmorgni til að taka saman árið 2010. Gleðilegt nýtt ár.