Öðrum áfanga sumarleyfis lokið

Í tilefni þess að verslunarmannahelgin sé liðin hlýtur að vera við hæfi að ljúka öðrum áfanga sumarleyfisins. Eftir að við náðum okkur eftir suðurferðina kíktum við í Kelduneskotið í einn dag, gistum þar og komum svo við í góðu stoppi í Hrísateignum á leiðinni til baka, það er ágætis færsla á síðunni hans Hartmanns um það flandur og flakk og gestakomur sem hafa verið hér undanfarið. Sveina, Hákon, Elísabet Hrönn og Daníel Ísar komu svo við í dag hér í Ásveginum á leiðinni suður og fengu vöfflur í hádegismat. Sumarleyfið er annars búið að ganga nokkuð vel, verið í nógu að snúast þó það sé komin ágætis tossalisti sem þarf að klára áður en alvara lífsins byrjar af fullum þunga aftur. Stefnan er svo tekin í stutta ömmuheimsókn suður í lok vikunnar og vera í u.þ.b. viku í borginni og ég ætla þá jafnvel að taka fyrstu vinnudagana mína þá.

Leave a Reply