Vefdagbók Tryggva

Þriðja áfanga sumarleyfis lokið
Frá því síðast þá höfum við kíkt í stutta heimsókn til Láru, meistara Tröllanna á Ólafsfirði en skonderuðum svo í suðurátt s.l. fimmtudag. Við settumst að hjá mömmu í Barmahlíðinni og tókum ýmsar heimsóknir, m.a. til Ingimars og Dísu í Mosfellsbæinn til að sjá svo gott sem asparlausa garð og hreint stórgott Rottugrill til Óla, Ingibjargar og Tinnu einnig í Mosfellsbæ þar sem var mikið gaman, mikið af börnum og farið í pottinn og hvað eina. Á miðvikudaginn fórum við Valdís svo á Nauthól í tilefni af afmæli hennar og fengum þar hreint stórgóðan mat og mikið af honum eldaðan af landsliðskokknum og frænda Valdísar Eyrþóri Rúnarssyni.

Við kíktum við svo upp í Ráðleysu þar sem Steini og Bobba voru að skutla Eddu Rós og Hrafnkeli í flug og færðum okkur svo um set á fimmtudaginn yfir í Ráðleysu til að rýma til í Barmahlíðinni (og dreifa álaginu af Hartmanni á sanngjarnan hátt). Þar voru líka Öddi “frændi” og Gulla og buðu þau í magnaða veislu á fimmtudagskvöldið, humar og hrefnu og svo var setið fram eftir við kamínuna og eldurinn glæddur duglega. Í gær fórum við svo í eplatrjáaleiðangur í Hveragerði en fundum engin tré og vorum næstum því búin að villast í uppsveitum Mosfellsbæjar (þar eru jú engin hringtorg, hvernig á maður að vita að þetta er Mosfellsbær!). Um kvöldið voru svo grillaðar tvær litlar hásingar á grillinu sem Steini smíðaði úr færibandaskúffu úr fiskvinnslu. Við héldum svo norður á bóginn snemma í morgun (af stað kl 9:00!) og komum heim passlega til að Hartmann gæti tekið lúrinn sinn og safnað kröftum til að mæta í þriggja ára afmælið hennar Karenar Írani.

Ég tók fyrstu vinnudagana í síðustu viku sem “aðlögun” og svo byrjar alvara lífsins núna á mánudaginn með tveggja daga suðurferð. Það eru svo tvær vikur þangað til Hartmann byrjar í sinni aðlögun hjá nýju dagmömmunni og svo vika eða svo í viðbót þangað til vinnan fer af stað hjá Valdísi. Ég gekk svo frá samningi við Opna háskólann um kennslu hjá viðurkenndum bókurum núna í haust og verður bæði kennt á Akureyri og í Reykjavík eins og í fyrra svo október verður dálítið stífur en óneitanlega er haustið að koma.

Öðrum áfanga sumarleyfis lokið
Í tilefni þess að verslunarmannahelgin sé liðin hlýtur að vera við hæfi að ljúka öðrum áfanga sumarleyfisins. Eftir að við náðum okkur eftir suðurferðina kíktum við í Kelduneskotið í einn dag, gistum þar og komum svo við í góðu stoppi í Hrísateignum á leiðinni til baka, það er ágætis færsla á síðunni hans Hartmanns um það flandur og flakk og gestakomur sem hafa verið hér undanfarið. Sveina, Hákon, Elísabet Hrönn og Daníel Ísar komu svo við í dag hér í Ásveginum á leiðinni suður og fengu vöfflur í hádegismat. Sumarleyfið er annars búið að ganga nokkuð vel, verið í nógu að snúast þó það sé komin ágætis tossalisti sem þarf að klára áður en alvara lífsins byrjar af fullum þunga aftur. Stefnan er svo tekin í stutta ömmuheimsókn suður í lok vikunnar og vera í u.þ.b. viku í borginni og ég ætla þá jafnvel að taka fyrstu vinnudagana mína þá.

Fyrsta áfanga sumarleyfis lokið
Suðurhluta orlofsins er lokið. Við lögðum af stað suður á mánudaginn, völdum auðvitað aðeins aðra leið en venja er til, fórum upp úr Skagafirði upp Mælifellsdal og þaðan yfir á Kjöl eftir nokkrum krókaleiðum og brunuðum svo suður. Þar voru Steini og Bobba að þvælast með hjólhýsið sitt og urðum við samferða í bústaðinn sem við leigðum frá KÍ að Gaddstöðum rétt austan við Hellu. Það var greinilega svona bústaður í einkaeigu sem KÍ leigir og mikið um skraut þar en umhverfið var skemmtilegt, lundir og flatir sem var gaman fyrir Hartmann að hlaupa um.

Steini og Bobba voru hjá okkur og fyrri daginn fórum við í stuttan bíltúr upp Fljótshlíðina að skoða ummerki eldgossins en útsýni á jökul var ekki neitt. Hinn daginn tókum við svo magnaðan bíltúr upp í Dómadal, kíktum inn í Landmannahelli og svo stoppuðum við í Landmannalaugum og fengum okkur að borða. Það var svo valið að fara upp í Hrauneyjar og þaðan yfir til Laugavatns í heimsókn til Hreins frænda Valdísar og Guðrúnar. Var þetta langur og strangur túr en Hartmann stóð sig eins og hetja og lét það ekkert á sig fá að vera á níu tíma stanslausu flakki. Í gær tókum við svo mikla afslöppun og röltum bara um næsta nágrenni okkar þarna að Gaddstöðum en Steini og Bobba lögðu af stað heim á leið austur fyrir. Í dag tókum við okkar dót saman og lögðum af stað norður. Fyrsta stopp  var á Selfossi til að taka bensín (sem var vinsælt…) og kíktum svo í gott kaffi til Tryggva og Stínu í Grímsnesinu. Hartmann var smástund að átta sig á að það væri mjög gaman að þessu góða fólki en skemmti sér svo við mesta og tók duglega til matar síns. Við fórum svo til Þingvalla og svo norður Kaldadal og keyrðum Borgarfjörðinn í fallegu veðri niður að Baulu og tókum svo bara hefðbundnu leiðina heim.

Nú tekur við nokkurra daga afslöppun og hvíld heima og þó nokkrar umferðir af þvotti.

Sumarfrí að hefjast
Eftir nokkrar tafir þá er síðasta vinnudagurinn minn formlega í dag, ætla að vera að mestu í sumarfríi næstu þrjár vikurnar og kannski rúmlega það. Það hafa komið upp alls konar undarleg mál í vinnunni (þökk sé AGS, Ríkisstjórnin, FME og fleirum…) en stefnan er tekin á sumarbústað sunnan lands og þvæling þar í kring í næstu viku. Það ætti að koma ágætis reynsla á nýja ökutæki heimilisins í þessum túr. Það er annars búið að vera tiltölulega rólegt fyrir utan vinnugeðveikina og vikan í Reykjavíkinni fór bara ágætlega fram. Mamma fékk að ammast alveg helling og Hartmann stóð sig vel í nýju umhverfi.

Sumarið að skýrast
Það væri að bera í bakkafullan að tala um að tíminn liði hratt. Það er aðeins að skýrast sumarið hjá okkur og líklega verður það eitthvað í þessa áttina: Reykjavík: 19. - 25. júní, ættarmót í Svarfaðardal: 26. og 27. júní, Gaddastaðir við Hellu: 12. - 17. júlí. Ég stefni svo á að byrja aftur að vinna 11. ágúst. Einhvern tíma þegar veður leyfir þá  ætlum við að kíkja í einhverja daga á Westfirðina til Díönu og Nonna.

And another month passed…
Annar mánuður er liðinn og ekki lítið að gera að vanda. Það er búið að halda ársafmælið hans Hartmanns en það gerðum við annan í Páskum. Það fór alveg ágætlega fram, komu hátt í 20 gestir á öllum aldri. Almennt búið að vera gestkvæmt, eftir Páska komu Díana systir og Nonni í heimsókn og Mamma var hér um Páska. Hartmann er búinn að taka upp á ýmsu nýju, enda að hressast hægt og rólega þó hann hafi fengið stök hitaskot. Hann tók nýja dótinu sem hann fékk í afmælisgjöf mjög vel, skopparakringlan vekur mikla lukku, bíllinn og stóllinn er að verða tilvalið sem klifurtæki, foreldrunum til ómældrar “gleði”. Það er örlítið að minnka vinnuálagið í vinnunni hjá mér og það er ekki frá því að það sé vor í lofti hér á Akureyri. Í dag kíkti ég svo í Íspan, pantaði nýja rúðu, spegil og svo voru pöntuð húsgögn frá IKEA til að bæta í safnið.

Árið hendist alveg áfram
Já febrúar mánuður hvarf svona nokkurn veginn í veikindi hjá okkur öllum á heimilinu. Hartmann endaði þetta á að taka lungnabólgu en er orðinn ágætlega hress núna eftir sýklalyfjaskammt. Það er auðvitað venju samkvæmt mikið að gera í vinnunni hjá mér á þessum árstíma og margir skiladagar á næstunni sem nálgast óðfluga. Svona þegar Páskarnir verða liðnir fer þetta vonandi eitthvað aðeins að róast. Þeir miklu snillingar Ólafur Elínarson og Haukur Freyr komu norður yfir heiðar í gær og tókum við ásamt Óla Helga rematch á CCHD sem siðast var haldið 08.10.2005. Dagskráin byrjaði á birgðaferðum í helstu verslanir sem máli skipta og svo var tekin söguganga um bæinn og endað í keilu og svo farið upp í Ásveg í síðbúin kvöldverð og hefðbundna dagskrá. Eitthvað hefur reynslan aukist hjá okkur því nú tókst að láta þrjá spila í Def Jam: Fight for NY en síðast gekk þetta jú eitthvað verr… Það má hins vegar segja að ég hafi algerlega verið í tapliðinu og rúmlega það. Dagurinn í dag var svo bærilegur fyrir flesta en misjafnvel þó, ég fór með aðkomumennina í sund og við kíktum á Bautann svona til að vera alveg örugglega að taka alla standardana á þetta.

Mánuðurdauðans 2010
Janúar var eiginlega farinn að verða bjánalega þungur svona í restina en í lok komu nauðsynlegar góðar fréttir til að rétta hann af. Það var venju samkvæmt mikið að gera í vinnunni hjá mér, kannski meira en venjulega en með góðri hjálp samstarfsmanna minna held ég að þetta hafi tekist svona nokkurn veginn. Það stendur þó ýmislegt út af borðinu mínu svona í lok mánaðarins en það tekst vonandi að berja það niður á næstu dögum.

Ofan í þetta hefur svo Valdís verið að byrja að vinna aftur og Hartmann að byrja hjá dagmömmu. Síðasta vika var aðlögun hjá honum en við náðum bara að mæta tvo daga af þrem en það kemst vonandi í fastar skorður í næstu viku.

Bílhelvítið var líka með stæla í frostinu en vonandi er búið að koma í veg fyrir það með því að setja hann hreinlega í hleðslu eina og eina nótt (v12 tvinnbíll, geri aðrir betur!). Dugnaðurinn heima fyrir er búinn að vera í lágmarki og fátt komist í verk. Leigjandinn nýi í kjallaranum flutti inn í byrjun mánaðarins og við máluðum eitt herbergi þar niðri í tilefni af því. Leigjendurnir í Tjarnarlundinum létu svo vita af því að þau gætu farið út 6. feb sem eru miklar gleðifréttir og þá er hægt að ganga frá því máli og þá erum við bara með eina fasteign í “takinu”.

Suðurferðir voru nokkuð reglulegar að hefð en þó náðum við Óli Helgi að gera ágætis þorrabjórsúttekt. Óli Örn kíkti við á ferð sinni um landshlutann nýlega og Óli EL kíkti í belgískar vöfflur á nýársdag. Það er þó engin regla að gestir þurfi að heita Óli en það vissulega gerir bókanir auðveldari.  Í lok mánaðarins kom svo í ljós að ég hafði náð CISA prófinu sem ég tók 12. desember sem er ágætis léttir. Það er svo sem ekkert útlit fyrir að það verði minna að gera í febrúar en tíminn líður þó ágætlega hratt á meðan.

Áramótaávarpið
Árið 2009 byrjaði á nýjum stað en í lok ársins 2008 flutti ég norður. Janúar og febrúar gengu nokkuð tíðindalaust. Ég var í vikulegum ferðum suður vegna vinnu og stoppaði að jafnaði tvo daga sem jók ágætlega nýtinguna á gestaherberginu hjá mömmu. Við Valdís vorum dugleg að fara á tónleika, sáum Ljótu hálfvitana í janúar og 200.000 naglbíta. Mars einkenndist svo af undirbúningi fyrir áætlaða komu erfingjans (sem var 26. mars) en snáðinn litli (lét bíða eftir sér alveg til 7. apríl og kom þá í heiminn eftir keisaraskurð. Við eyddum fyrstu vikunni (þ.m.t. páskunum) á FSA vegna sýkingar og fékk hann sýklalyf í æð tvisvar á sólarhring á barnadeildinni. Þó það hafi auðvitað ekki verið draumastaðan er ekki hægt að segja annað en að starfsfólk FSA sé ekkert minna en frábært. Við byrjuðum svo maí á því að gefa drengnum nafnið Hartmann Völundur annars vegar í höfuðið á langafa sínum Hartmanni Eymundssyni og seinna nafnið kemur aðallega til vegna þess að hann var svo duglegur með hendurnar á sér strax frá fæðingu.

Ég tók ágætis slurk af fæðingarorlofi sem kom sér vel því að í lok maí  seldist Öldugrandinn svo sem ekki á þann pening sem maður vildi fá fyrir hann en nóg til þess að við sett boltann í gang og buðum í Ásveg 20 í byrjun júní og fengum tilboð samþykkt að lokum. Afhending á því var svo 15. júlí og margt sem þurfti að gera og græja. Til lánsins tók ég mér sumarfrí/fæðingarorlof mestallan júní,júlí og fram í ágúst og var tíminn notaður að endurbæta nýja heimilið, stækka baðherbergi, rífa niður veggi, sameina fataskápa og mála heilan heilling. Þessar framkvæmdir kláruðust að mestu í byrjun ágúst en við fluttum inn 25. júlí og afhentum Tjarnarlundinn til leigjenda 1. ágúst og það tókst að afhenda Öldugrandann til kaupandans 21. júlí. Afsölin af þessum eignum voru svo 1. og 2. október og eftir talsvert þvarg tókst að ganga frá sölunni en kaupin gengu án allra vandræða.

Þegar fór að draga að hausti urðu talsverðar breytingar á vinnustaðnum mínum sem juku dálítið á Reykjavíkurdvölina hjá mér (oft 3 dagar í viku) en við gerðum líka ýmislegt annað eins og að fara í ungbarnasund með Hartmann sem var mjög skemmtilegt. Í október tók ég svo að mér eins og í fyrra kennslu í opna háskólanum hjá HR og í þetta skiptið tók ég þetta einn og í þokkabót var efnið kennt bæði í Reykjavík (mánudagskvöld) og á Akureyri (föstudagskvöld). Það var því ágætis sprettur og talsvert álag ofan á allt annað. Í desember þreytti ég CISA prófið og fæ vonandi niðurstöðuna öðru hvoru megin við mánaðamótin jan/feb 2010. Í desember náðist svo að selja Tjarnarlundinn sem eru miklar gleðifréttir á þessum síðustu og verstu tímum auðvitað. Eins og með Öldugrandann var verðið auðvitað of lágt en léttirinn mikill að vera laus við allan þennan fasteignarekstur. Það urðu svo leigjendaskipti í kjallaranum hjá okkur líka en íbúð stóð tóm í desember og kom hún sér ágætlega til að hýsa gesti.

Þetta var óneitanlega viðburgðaríkt ár með breytingum á flestum sviðum lífs míns en samt má segja að það hafi verið stærri viðburðir frekar en magnið. Við enduðum árið aldrei þessu vant á okkar eigin heimili og fengum til okkur Mömmu, Díönu systur og Nonna yfir hátíðirnar en tengdó fóru til Danmerkur með Rögnu og voru þar um hátíðirnar. Við tókum auðvitað gamlárskvöldið í Ásveginum þar sem er ágætis stemming. Landsbjörg var styrkt aðeins þetta árið, vonandi meira á næsta ári.

Það verður örugglega engin lognmolla á árinu 2010 frekar en fyrri daginn, fyrri hluti árs verður örugglega brattur á öllum sviðum og það er ekki hægt að segja annað en að það sé nóg að gera og því örugglega stutt þangað til maður sest niður á næsta nýársmorgni til að taka saman árið 2010. Gleðilegt nýtt ár.

Jólin nálast
Það er búið að ná að gera ýmislegt á síðasta mánuði. Mér tókst að fara í CISA prófið 12. des og var svona sæmilega undir það búinn. Niðurstaðan kemur svo eftir 8 vikur og vonandi var árangurinn nægjanlegur. Það er búið að klára ýmislegt en þó ekki allt á heimilinu fyrir Jólin. Allar jólagjafirnar eru þó frá nema gjöfin til Hartmanns frá foreldrunum, búið að setja öll jólakortin í póst og græja helstu hlutina fyrir jól. Það er ágætt að nota jólin sem afsökun til að koma hlutum í verk en jólin koma sama hvernig staðan á todo-listanum er. Mamma, Díana og Nonni koma til okkar um jólin, Díana og Nonni verða alveg fram á nýja árið en mamma skreppur aðeins að vinna milli hátíða en kemur svo aftur. Ég er búinn að vera að verja eina tösku með gjöfum fram og til baka í síðustu suðurferðum og vonandi verður síðasta ferð ársins á morgun og bara dagsferð. Tengdó og Ragna lentu svo í Köben í dag og verða þar fram á nýja árið.

Íbúðin niðri er svo tóm sem stendur og verður notuð undir gesti fram á nýja árið en þá tekur vonandi nýr leigjandi við. Það eru svo söluþreifingar í gangi í Tjarnarlundinum sem vonandi enda með sölu þegar veður leyfir. Þó verðið sé vitanlega ekki nógu hátt

Vinnan hefur gengið ágætlega, auðvitað ekki án erfiðleika en við því var s.s. að búast. Vertíðin er tæplega hálfnuð á þeim bæ og verður dálítið bratt núna í janúar og febrúar. Bæði eru stór og mörg verkefni í gangi og Valdís er að byrja að kenna aftur og það kallar auðvitað á aðlögun og breytingar.