Archive for the ‘personal’ Category

Áramótaávarpið

Tuesday, January 1st, 2013

Nú árið er liðið enn og aftur og stutt síðan síðast. Árið hófst með tiltölulega hefðbundnu sniði og vinnur og leikskóli gengu sinn vanagang. Í byrjun mars skruppum við í skírn til Ísafjarðar þegar sem Díana og Nonni skírðu hana Amelíu Jónsdóttur. Hartmann varð svo þriggja ára og var haldið upp á það með hefðbundinni veislu í byrjun apríl. Óli Helgi og Dagný giftu sig svo í byrjun sumars og var hefðbundið steggjaprógram á undan, góð veisla á eftir og mikil gleði allt um kring. Ég sótti mér líka skotvopnaleyfi í vor og tókst að fara einn dag í rjúpu (0 dráp) og tvær ferðir í gæs (0 dráp). Veður og annríki settu strik í þann reikning eins og aðra.

(more…)

Breytingar á högum

Sunday, August 19th, 2012

Í vikunni urðu breytingar á högum manns en þá hætti ég formlega í vinnunni minni hjá Deloitte og hóf störf hjá Advania. Við það hætta þessu viðvarandi 2-3 daga ferðalög til Reykjavíkur sem hafa verið einkenni flestra vikna hjá mér síðan ég flutti norður í lok desember 2008. Ég upplifði það einhvern veginn eftir vinnu á fimmtudaginn, eftir fullan vinnudag númer tvö, að ég væri einhvern veginn meira fluttur heldur en áður.

Það er búið að vera lærdómsríkt og gaman að vinna hjá Deloitte s.l. fimm ár og margt gott sem maður tekur með sér í reynslubankanum. Það eru líka spennandi tímar framundan hjá Advania (sem ég þekki betur sem Skýrr og EJS). Mörg verkefni þar sem verður gaman að bræða saman mína reynslu, frá ýmsum áttum, og þess hóps sem er þarna í dag. Það er a.m.k. engin hætta á að manni leiðist í þessari vinnu og vonandi nær maður að nota tímann vel heima líka fyrst maður er ekki á þessu stöðuga flandri landshorna á milli.

Áramótaávarpið

Sunday, January 1st, 2012

Ekki getur það nú talist mikið að skrifa fjögur “blogg” á ári og agalegt að sjá enn áramótaávarpið 2010 á forsíðunni. Í byrjun ársins snjóaði ágætlega hér á Akureyri og Hartmann litli stækkaði og stækkaði og stækkaði. Hann var fram eftir ári hjá þeim Bylgju og Auðuni dagforeldrum uppi í Akurgerði en í apríl fengum við þær gleðifréttir að hann hefði fengið inni á Hólmasól í maí sem er leikskóli í næstu götu og er í ofanálag “hverfis”skólinn. Í apríl varð svo gaurinn tveggja ára og við héldum upp á það með ágætis veislu og fékk hann þríhjól í afmælisgjöf frá foreldrunum. (more…)

Langur tími liðinn

Sunday, December 18th, 2011

Það má með sanni segja að bloggsíður hafi þagnað verulega á heimilinu þetta árið. Það er þó ýmislegt búið að gerast sem má færa til bókar. Hartmann varð tveggja ára auðvitað, skömmu síðar byrjaði hann á leikskólanum Hólmasól. Við fórum til Hollands í sumar að heimsækja Elvu, Jorrit og Magna Stein og svo kíktum við nokkrum sinnum á Ísafjörð. Díana og Nonni gistu sig 25. júní og má segja að heimilið hafi verið undirlagt af því í góða viku. Ég var svo ásamt Villa bróður hans Nonna veislustjóri í fínni veislu þeirra eftir athöfnina. Sumarfríið kláraðist svo, Hartmann byrjaði aftur í leikskólanum, ég byrjaði aftur að vinna og Valdís byrjaði aftur að kenna (í þessari röð). Haustið í vinnunni hjá mér var svo með þyngra lagi, mikið af aukaferðum þ.m.t. 10 daga vinnuferð til Bandaríkjanna.

Fluttur

Friday, December 16th, 2011

Til Bröndu af Baulu

Vika dauðans, svo sannarlega!

Friday, February 18th, 2011

Oft hafa vikurnar verið svakalegar en þessi síðasta var nú eiginlega í sérflokki. Ég þurfti að hendast á fundi í Reykjavík á mánudaginn og skrapp því fram og til baka á mánudeginum. Svo var ég bókaður í Vestmannaeyjatúr á miðvikudaginn og þurfti því að fljúga suður á þriðjudagskvöldinu til að ná flugi kl 08:00 til Eyja og svo til baka 17:00. Sem gekk nú vel sem er saga til næsta bæjar. Síðan var ég kominn með brottfararspjald í hendurnar í gær þegar var hringt í mig og fundi flýtt sem átti að vera 11 á mánudag til 11 Í DAG sem varð til þess að ég fór aftur suður í morgun og kom svo norður núna klukkan fjögur.

Áramótaávarpið

Sunday, January 2nd, 2011

Árið 2010 var nú frekar tíðindalítið miðað við mörg fyrri ár, enda erfitt að toppa 2009. Árið byrjaði á því að Valdís fór aftur að vinna eftir fæðingarorlof og Hartmann fór til dagmömmu. Það gékk nú frekar illa fyrstu vikurnar því hann náði sér í lungnabólgu og var því meira og minna veikur að okkur fannst í rúman mánuð með mikinn hita og talsvert minni en venjulega. Þeir félagar Óli EL, Óli Helgi og Haukur Freyr komu svo hingað í CCHD deux þann 13. mars 2010 (forverinn var 08.10.2005). Hartmann hélt svo upp á fyrsta afmælið sitt aðeins á undan áætlun til að nýta Annan í Páskum og alla ættingjana sem voru á svæðinu þá.

(more…)

Það hefur svo sem ekki verið frá fáu að segja.

Sunday, November 14th, 2010

Síðan í ágúst er búið að vera margt að gerast hjá okkur. Hartmann er byrjaður hjá dagforeldrum (hjón upp í Akurgerði sem eru saman með 10 börn), vinnan á fullu hjá mér og Valdískenna á fullu líka. Ég tók svo minn hefðbundna kennsluskammt fyrir Opna háskólann í október, bæði hér á Akureyri og í Reykjavík um innra eftirlit og upplýsingakerfi fyrir viðurkennda bókara. Það gekk bara ágætlega, enda þriðja árið sem ég tek þetta og í annað sinn á báðum stöðum svo þetta er í raun hópar 4 og 5 sem ég kenni.

Í lok október lést svo hún Lilla amma mín og var jarðarförin hennar á föstudaginn 5. nóvember frá Akureyrarkirkju í alveg ótrúlega fallegu vetrarveðri. Það er auðvitað margt sem maður vill og getur sagt um það en kannski það sem upp úr stendur er að þegar eldra fór deyr þá er það auðvitað ekki jafn sorglegt og óréttlátt og þegar yngra fólk fer en þess ber þó að geta og hafa í huga að missirinn er ekkert minni.

Vetur minnti svo hressilega á sig hér á Akureyri síðustu dagana og er örugglega búið að snjóa hátt í metra og gærdagurinn fór að mestu í að moka snjó og moka upp bíla og slíkt vesen. Við lánuðum svo bílskúrinn okkar undir búslóð einmitt þennan mánuðinn og svo fram til 1. des þar sem Kristbjörg og Goggi eru húsnæðislaus vegna fasteignakaupa, akkúrat þegar væri nú ljúft að stinga bíl inn í skúr yfir nótt til að þurrka hann ;-) en það kemur. Það er svo innan við vika í afmælið mitt, n.k. föstudag sem merkilegt nokk er líka dagurinn er jólabjórinn kemur í Ríkið og alþjóðlegur dagur karlmanna.

Ég er með einhverja draumóra um það að geta tekið mér eitthvað af þessum þremur vikum af sumarfríi sem ég náði ekki að eyða af síðasta orlofsári núna í lok nóvember eða byrjun desember. Hvernig það gengur verður bara að koma í ljós en það er samt alltaf gott að setja sér háleit markmið.

Þriðja áfanga sumarleyfis lokið

Saturday, August 14th, 2010

Frá því síðast þá höfum við kíkt í stutta heimsókn til Láru, meistara Tröllanna á Ólafsfirði en skonderuðum svo í suðurátt s.l. fimmtudag. Við settumst að hjá mömmu í Barmahlíðinni og tókum ýmsar heimsóknir, m.a. til Ingimars og Dísu í Mosfellsbæinn til að sjá svo gott sem asparlausa garð og hreint stórgott Rottugrill til Óla, Ingibjargar og Tinnu einnig í Mosfellsbæ þar sem var mikið gaman, mikið af börnum og farið í pottinn og hvað eina. Á miðvikudaginn fórum við Valdís svo á Nauthól í tilefni af afmæli hennar og fengum þar hreint stórgóðan mat og mikið af honum eldaðan af landsliðskokknum og frænda Valdísar Eyrþóri Rúnarssyni.

(more…)

Öðrum áfanga sumarleyfis lokið

Monday, August 2nd, 2010

Í tilefni þess að verslunarmannahelgin sé liðin hlýtur að vera við hæfi að ljúka öðrum áfanga sumarleyfisins. Eftir að við náðum okkur eftir suðurferðina kíktum við í Kelduneskotið í einn dag, gistum þar og komum svo við í góðu stoppi í Hrísateignum á leiðinni til baka, það er ágætis færsla á síðunni hans Hartmanns um það flandur og flakk og gestakomur sem hafa verið hér undanfarið. Sveina, Hákon, Elísabet Hrönn og Daníel Ísar komu svo við í dag hér í Ásveginum á leiðinni suður og fengu vöfflur í hádegismat. Sumarleyfið er annars búið að ganga nokkuð vel, verið í nógu að snúast þó það sé komin ágætis tossalisti sem þarf að klára áður en alvara lífsins byrjar af fullum þunga aftur. Stefnan er svo tekin í stutta ömmuheimsókn suður í lok vikunnar og vera í u.þ.b. viku í borginni og ég ætla þá jafnvel að taka fyrstu vinnudagana mína þá.