Archive for the ‘personal’ Category

Fyrsta áfanga sumarleyfis lokið

Friday, July 16th, 2010

Suðurhluta orlofsins er lokið. Við lögðum af stað suður á mánudaginn, völdum auðvitað aðeins aðra leið en venja er til, fórum upp úr Skagafirði upp Mælifellsdal og þaðan yfir á Kjöl eftir nokkrum krókaleiðum og brunuðum svo suður. Þar voru Steini og Bobba að þvælast með hjólhýsið sitt og urðum við samferða í bústaðinn sem við leigðum frá KÍ að Gaddstöðum rétt austan við Hellu. Það var greinilega svona bústaður í einkaeigu sem KÍ leigir og mikið um skraut þar en umhverfið var skemmtilegt, lundir og flatir sem var gaman fyrir Hartmann að hlaupa um.

(more…)

Sumarfrí að hefjast

Friday, July 9th, 2010

Eftir nokkrar tafir þá er síðasta vinnudagurinn minn formlega í dag, ætla að vera að mestu í sumarfríi næstu þrjár vikurnar og kannski rúmlega það. Það hafa komið upp alls konar undarleg mál í vinnunni (þökk sé AGS, Ríkisstjórnin, FME og fleirum…) en stefnan er tekin á sumarbústað sunnan lands og þvæling þar í kring í næstu viku. Það ætti að koma ágætis reynsla á nýja ökutæki heimilisins í þessum túr. Það er annars búið að vera tiltölulega rólegt fyrir utan vinnugeðveikina og vikan í Reykjavíkinni fór bara ágætlega fram. Mamma fékk að ammast alveg helling og Hartmann stóð sig vel í nýju umhverfi.

Sumarið að skýrast

Wednesday, May 5th, 2010

Það væri að bera í bakkafullan að tala um að tíminn liði hratt. Það er aðeins að skýrast sumarið hjá okkur og líklega verður það eitthvað í þessa áttina: Reykjavík: 19. – 25. júní, ættarmót í Svarfaðardal: 26. og 27. júní, Gaddastaðir við Hellu: 12. – 17. júlí. Ég stefni svo á að byrja aftur að vinna 11. ágúst. Einhvern tíma þegar veður leyfir þá  ætlum við að kíkja í einhverja daga á Westfirðina til Díönu og Nonna.

And another month passed…

Monday, April 12th, 2010

Annar mánuður er liðinn og ekki lítið að gera að vanda. Það er búið að halda ársafmælið hans Hartmanns en það gerðum við annan í Páskum. Það fór alveg ágætlega fram, komu hátt í 20 gestir á öllum aldri. Almennt búið að vera gestkvæmt, eftir Páska komu Díana systir og Nonni í heimsókn og Mamma var hér um Páska. Hartmann er búinn að taka upp á ýmsu nýju, enda að hressast hægt og rólega þó hann hafi fengið stök hitaskot. Hann tók nýja dótinu sem hann fékk í afmælisgjöf mjög vel, skopparakringlan vekur mikla lukku, bíllinn og stóllinn er að verða tilvalið sem klifurtæki, foreldrunum til ómældrar “gleði”. Það er örlítið að minnka vinnuálagið í vinnunni hjá mér og það er ekki frá því að það sé vor í lofti hér á Akureyri. Í dag kíkti ég svo í Íspan, pantaði nýja rúðu, spegil og svo voru pöntuð húsgögn frá IKEA til að bæta í safnið.

Árið hendist alveg áfram

Sunday, March 14th, 2010

Já febrúar mánuður hvarf svona nokkurn veginn í veikindi hjá okkur öllum á heimilinu. Hartmann endaði þetta á að taka lungnabólgu en er orðinn ágætlega hress núna eftir sýklalyfjaskammt. Það er auðvitað venju samkvæmt mikið að gera í vinnunni hjá mér á þessum árstíma og margir skiladagar á næstunni sem nálgast óðfluga. Svona þegar Páskarnir verða liðnir fer þetta vonandi eitthvað aðeins að róast. Þeir miklu snillingar Ólafur Elínarson og Haukur Freyr komu norður yfir heiðar í gær og tókum við ásamt Óla Helga rematch á CCHD sem siðast var haldið 08.10.2005. Dagskráin byrjaði á birgðaferðum í helstu verslanir sem máli skipta og svo var tekin söguganga um bæinn og endað í keilu og svo farið upp í Ásveg í síðbúin kvöldverð og hefðbundna dagskrá. Eitthvað hefur reynslan aukist hjá okkur því nú tókst að láta þrjá spila í Def Jam: Fight for NY en síðast gekk þetta jú eitthvað verr… Það má hins vegar segja að ég hafi algerlega verið í tapliðinu og rúmlega það. Dagurinn í dag var svo bærilegur fyrir flesta en misjafnvel þó, ég fór með aðkomumennina í sund og við kíktum á Bautann svona til að vera alveg örugglega að taka alla standardana á þetta.

Mánuðurdauðans 2010

Saturday, January 30th, 2010

Janúar var eiginlega farinn að verða bjánalega þungur svona í restina en í lok komu nauðsynlegar góðar fréttir til að rétta hann af. Það var venju samkvæmt mikið að gera í vinnunni hjá mér, kannski meira en venjulega en með góðri hjálp samstarfsmanna minna held ég að þetta hafi tekist svona nokkurn veginn. Það stendur þó ýmislegt út af borðinu mínu svona í lok mánaðarins en það tekst vonandi að berja það niður á næstu dögum.

(more…)

Áramótaávarpið

Friday, January 1st, 2010

Árið 2009 byrjaði á nýjum stað en í lok ársins 2008 flutti ég norður. Janúar og febrúar gengu nokkuð tíðindalaust. Ég var í vikulegum ferðum suður vegna vinnu og stoppaði að jafnaði tvo daga sem jók ágætlega nýtinguna á gestaherberginu hjá mömmu. Við Valdís vorum dugleg að fara á tónleika, sáum Ljótu hálfvitana í janúar og 200.000 naglbíta. Mars einkenndist svo af undirbúningi fyrir áætlaða komu erfingjans (sem var 26. mars) en snáðinn litli (lét bíða eftir sér alveg til 7. apríl og kom þá í heiminn eftir keisaraskurð. Við eyddum fyrstu vikunni (þ.m.t. páskunum) á FSA vegna sýkingar og fékk hann sýklalyf í æð tvisvar á sólarhring á barnadeildinni. Þó það hafi auðvitað ekki verið draumastaðan er ekki hægt að segja annað en að starfsfólk FSA sé ekkert minna en frábært. Við byrjuðum svo maí á því að gefa drengnum nafnið Hartmann Völundur annars vegar í höfuðið á langafa sínum Hartmanni Eymundssyni og seinna nafnið kemur aðallega til vegna þess að hann var svo duglegur með hendurnar á sér strax frá fæðingu.

(more…)

Jólin nálast

Sunday, December 20th, 2009

Það er búið að ná að gera ýmislegt á síðasta mánuði. Mér tókst að fara í CISA prófið 12. des og var svona sæmilega undir það búinn. Niðurstaðan kemur svo eftir 8 vikur og vonandi var árangurinn nægjanlegur. Það er búið að klára ýmislegt en þó ekki allt á heimilinu fyrir Jólin. Allar jólagjafirnar eru þó frá nema gjöfin til Hartmanns frá foreldrunum, búið að setja öll jólakortin í póst og græja helstu hlutina fyrir jól. Það er ágætt að nota jólin sem afsökun til að koma hlutum í verk en jólin koma sama hvernig staðan á todo-listanum er. Mamma, Díana og Nonni koma til okkar um jólin, Díana og Nonni verða alveg fram á nýja árið en mamma skreppur aðeins að vinna milli hátíða en kemur svo aftur. Ég er búinn að vera að verja eina tösku með gjöfum fram og til baka í síðustu suðurferðum og vonandi verður síðasta ferð ársins á morgun og bara dagsferð. Tengdó og Ragna lentu svo í Köben í dag og verða þar fram á nýja árið.
Íbúðin niðri er svo tóm sem stendur og verður notuð undir gesti fram á nýja árið en þá tekur vonandi nýr leigjandi við. Það eru svo söluþreifingar í gangi í Tjarnarlundinum sem vonandi enda með sölu þegar veður leyfir. Þó verðið sé vitanlega ekki nógu hátt
Vinnan hefur gengið ágætlega, auðvitað ekki án erfiðleika en við því var s.s. að búast. Vertíðin er tæplega hálfnuð á þeim bæ og verður dálítið bratt núna í janúar og febrúar. Bæði eru stór og mörg verkefni í gangi og Valdís er að byrja að kenna aftur og það kallar auðvitað á aðlögun og breytingar.

Afmæli í dag

Thursday, November 19th, 2009

Það er víst afmælið manns í dag, 32 ár að baki. Það er eiginlega hægt að segja að síðasta ár hafi verið dálítið viðburðaríkt og fátt í lífi manns sem er óbreytt. Hartmann fæddist, flutningar (norður) og flutningar (Ásvegur) aftur, talsverðar breytingar í vinnunni og jú eitthvað færri hár og grárri.

Ég var búinn að vera síðustu sex vinnudaga í Reykjavíkinni enda sjaldan flogið jafnmikið á milli eins og einmitt þetta árið. Það er alltaf voðalega ljúft að koma heim og Ásvegurinn verður einhvern veginn alltaf meira og meira heim. Svei mér þá ef þetta síðasta ár er bara ekki búið að vera betra en árið á undan, getting better all the time eins og Bítlarnir sögðu. Held það sé hverju orði sannara.

Þegar maður á að vera að gera eitthvað annað…

Sunday, November 15th, 2009

Þegar önnur verkefni (prófyfirferð o.fl. skemmtilegt) bíður er ýmislegt sem maður gerir annað. Eftir að okkur tókst að koma upp vinnuaðstöðu í gær fór maður auðvitað í ýmis verkefni sem hafa beðið eftir því að maður hefur borðpláss. Eitt af því var að uppfæra afritin inn á NAS-boxinu sem ég keypti í október í fyrra. Það voru líka nokkrir fídusar sem höfðu aldrei virkað, t.d. iTunes þjónustan og BT clientinn. Ég rak augun í að ég var að nota firmware 1.04 en 2.2B var nýjasta, sem er dálítið stökk. Ég tók auðvitað sénsinn (vitandi af afritum af flestu á öðrum stöðum) og uppfærði. iTunes datt í gang og m.v. aðstæður BT líka (tók smástund að fatta ákveðnar takmarkanir í nettengingum hjá mér…). 1Tb diskurinn í þessari græju er samt óðum að fyllast. Ein af skýringunum á því er væntanlega að myndasafn ársins er af einhverjum ástæðum mjög stórt. Mér finnst reyndar pínu galli að prentþjónninn í græjunni er ekki að tala við Bonjour (eins og t.d. iTunes-ið) en það virkar en það er betra fyrir okkur makkafólkið að tengja bara prentarann við borðvélina sem er hvort eð er oftast í gangi (eða mjög nálægt því að vera í gangi).
Jæja þetta var eitthvað sem átti að klárast fyrir um ári síðan :) Betra seint en aldrei.