November 19th, 2009
Það er víst afmælið manns í dag, 32 ár að baki. Það er eiginlega hægt að segja að síðasta ár hafi verið dálítið viðburðaríkt og fátt í lífi manns sem er óbreytt. Hartmann fæddist, flutningar (norður) og flutningar (Ásvegur) aftur, talsverðar breytingar í vinnunni og jú eitthvað færri hár og grárri.
Ég var búinn að vera síðustu sex vinnudaga í Reykjavíkinni enda sjaldan flogið jafnmikið á milli eins og einmitt þetta árið. Það er alltaf voðalega ljúft að koma heim og Ásvegurinn verður einhvern veginn alltaf meira og meira heim. Svei mér þá ef þetta síðasta ár er bara ekki búið að vera betra en árið á undan, getting better all the time eins og Bítlarnir sögðu. Held það sé hverju orði sannara.
Posted in personal | 1 Comment »
November 15th, 2009
Þegar önnur verkefni (prófyfirferð o.fl. skemmtilegt) bíður er ýmislegt sem maður gerir annað. Eftir að okkur tókst að koma upp vinnuaðstöðu í gær fór maður auðvitað í ýmis verkefni sem hafa beðið eftir því að maður hefur borðpláss. Eitt af því var að uppfæra afritin inn á NAS-boxinu sem ég keypti í október í fyrra. Það voru líka nokkrir fídusar sem höfðu aldrei virkað, t.d. iTunes þjónustan og BT clientinn. Ég rak augun í að ég var að nota firmware 1.04 en 2.2B var nýjasta, sem er dálítið stökk. Ég tók auðvitað sénsinn (vitandi af afritum af flestu á öðrum stöðum) og uppfærði. iTunes datt í gang og m.v. aðstæður BT líka (tók smástund að fatta ákveðnar takmarkanir í nettengingum hjá mér…). 1Tb diskurinn í þessari græju er samt óðum að fyllast. Ein af skýringunum á því er væntanlega að myndasafn ársins er af einhverjum ástæðum mjög stórt. Mér finnst reyndar pínu galli að prentþjónninn í græjunni er ekki að tala við Bonjour (eins og t.d. iTunes-ið) en það virkar en það er betra fyrir okkur makkafólkið að tengja bara prentarann við borðvélina sem er hvort eð er oftast í gangi (eða mjög nálægt því að vera í gangi).
Jæja þetta var eitthvað sem átti að klárast fyrir um ári síðan
Betra seint en aldrei.
Posted in personal | No Comments »
November 14th, 2009
Við höfum verið að skammta okkur verkefnin núna á helgarnar til að reyna að klára hluti fyrir Jól. Það gengur ágætlega og í dag náðist að klára vinnuherbergið. Við versluðum svefnsófa og fórum með gamla rúmið niður í kjallara og versluðum það sem flestir myndu kalla borðstofuborð en við höfum ákveðið að kalla vinnuborð. Þetta er 140×90cm borð (stækkanlegt en stækkun fylgir ekki) og með tölvuborði við hliðina þá er þetta alveg nothæf vinnuaðstaða fyrir tvo. Þar sem það er búið að bóka gistingu á öllum hæðum um Jólin var ágætt að fjárfesta líka í svefnsófa og koma gamla rúminu niður. Leigjandinn okkar þar sagði upp leigunni og verður íbúðin því tóm í desember en við ætlum að nýta okkur það til að hýsa ættingja um Jólin. Sjá svo til með að finna bara leigjanda til vorsins og hafa hana jafnvel tóma í sumar líka (með einhverjum lágmarkshúsgögnum) til að taka við gestum og gangandi sem verða á þvælingi. Gestagangurinn reyndar byrjar um næstu helgi en þá eru markmiðin s.s. ekki háleit en það á að ganga frá aðeins í herberginu hjá Hartmanni (málning og gólflistar). Það er svo alveg eftir að ganga frá ljósamálunum, ennþá dálítil austantjaldsstemming hjá okkur í þeirri deildinni.
Posted in personal | No Comments »
October 23rd, 2009
Það kemur manni á óvart hvað tíminn flýgur áfram. Október er samt búinn að ganga ágætlega fyrir sig, mikið að gera bæði heima, í vinnunni og svo er auðvitað auka álag vegna kennslunar bæði í Reykjavík og á Akureyri (tvö kvöld í viku) en síðasti kennslutíminn er núna á eftir og þá er bara eftir að semja próf, leggja fyrir próf og fara yfir próf (jibbí!).
Það er óvenjumikið flakk á okkur þessa dagana. Ég fór suður á mánudag, til baka á þriðjudag og skrapp svo aftur í gær fram og til baka sama daginn og svo erum við að fara í fyrramálið (laugardagsmorgun) keyrandi suður og verðum í afmælinu hennar mömmu annað kvöld og sennilega kíkir maður aðeins við á árshátíð Deloitte. Við ætlum svo að stoppa í einhverja daga fyrir sunnan eftir helgina og fara bara aftur norður í rólegheitunum.
Posted in personal | No Comments »
September 28th, 2009
Helgin fór í algeran dugnað! Byrjaði eftir vinnu á föstudagskvöldið að ganga frá handföngum og læsingum á hurðirnar, laugardagurinn fór svo í að rusla til kössum, flokka, merkja og fara með drasl niður í kyndiklefa úr bílskúrnum og tókst mér að koma bílnum inn fyrir lok dags! Harla gott afrek það. Á sunnudaginn var svo ágætur dugnaður líka en í smærri og afmarkaðari hlutum. Afraksturinn er samt ágætur og eftir mikla vinnutörn var ágætt að komast í aðeins annan gír og skilja vinnuna alveg eftir, í vinnunni. Planið er svo að klára flísalögnina á baðinu (eftir framan á vatnskassann) á föstudaginn og jafnvel reyna að fara að láta sér detta í hug að finna spegil til að skella á vegginn og eitthvert sniðugt veggljós með.
Mánuðurinn er svo hægt og rólega að klárast og í október er stefnan tekin m.a. á 50. ára afmælisfagnað mömmu í Reykjavík. Það verður síðan nóg að gera bæði á vinnuvígstöðvunum og svo ver ég líka að kenna hluta af námi viðurkenndra bókara bæði í Reykjavík og á Akureyri þrjú mánudags- og föstudagskvöld í mánuðinum og þarf svo að halda próf fyrir allan hópinn um mánaðamótin. Þetta er þó sama og í fyrra þannig að þetta ætti að vera tiltölulega þægilegt.
Posted in personal | No Comments »
September 19th, 2009
Á síðasta mánuði er margt búið að gerast, Hartmann búinn að vaxta og dafna helling og orðinn duglegur að sýna sjálfstæði sitt. Vinnan er farin að aukast og nóg að gera á þeim vígstöðvum. Heima fyrir höfum við verið að láta hlutina gerast hægt og rólega, búið að setja innréttingu á baðið, fataskáp í herbergið, nýjar innihurðir (4stk), hengja upp gardínur og þetta er svona hægt og rólega að komast í horfið.
Það er allavega að verða nokkuð viðráðanlegur listi sem á eftir, ganga frá flísalögn í kringum klósett, græja ljós, panta spegil á baðið, taka til í bílskúrnum til að koma bílnum inn, skipta um rúðuna við útidyrahurðina og svo smotterí hér og þar. Þetta ætti allt að gerast klárast fyrir Jólin.
Posted in personal | No Comments »
August 19th, 2009
Hin alvara lífsins byrjaði núna á mánudaginn en þá snéri ég aftur til vinnu eftir tveggja mánaða sumarleyfi/fæðingarorlof. Ég byrjaði á tveimur dögum í Reykjavíkinni til að koma mér af stað en er nú aftur kominn heim og hjólin farin að snúast aðeins.
Framkvæmdirnar heima standa líka ágætlega, píparar létu sjá sig á mánudag og stendur því ekkert út af hjá þeim. Við ætlum að biðja Alfa um að smíða fyrir okkur innréttingu, skápa og hurðir og var mælt fyrir því á mánudaginn líka. Svo er bara að halda sig við efnið og verða ekki húsblindu að bráð!
Posted in personal | No Comments »
August 4th, 2009
Við fluttum inn þann 25. júlí eins og áætlanir stóðu til þrátt fyrir afföll af hjálparkokkum þá gekk þetta ágætlega. Það er svo búið að vera að vinna í því hægt og rólega að koma hlutunum í nothæft ástand síðustu vikuna. Baðherbergið er að skríða saman, flísalögnin alveg að klárast en eftir stendur að það þarf að búa til einhverja innréttingu undir vaskinn og græja nýja hurð. Svefnherbergið okkar er líka alveg að verða tilbúið, það er reyndar notað sem vinnuaðstaða í flísalögninni en það er bara eftir ein umferð af málningu og svo auðvitað fataskápurinn nýi sem bíður þess að trésmiðir Akureyrar komi aftur úr sumarfríi. Herbergið hans Hartmanns var málað af mömmunni og ömmunni um Verslunarmannahelgina og er orðið alveg gríðarlega glaðlegt. Það eru smotteríis “effectar” eftir þar en allt að skríða saman. Önnur rými íbúðarinnar eru orðin nokkuð tilbúin, svo þarf auðvitað að rusla hlutum til þegar herbergin tvö eru tekin í notkun. Það er líka orðið fært í gegnum bílskúrinn aftur en það á samt eftir að taka dálítið hressilega til þar áður en þar kemst inn bíll.
Við náðum líka að bjóða mömmu, Díönu, Nonna og Karen í mat á laugardagskvöldið og var Hartmann yngri mikið samkvæmisljón og skemmti sér hið mesta. Það hefur að mestu allt gengið eftir og með góðri hjálp bæði ættingja og annarra er búið að leggja alveg svakalega vinnu í þessa fasteign og svo sem alveg ljóst að þetta er ekki alveg búið og augljóslega nóg af verkefnum næstu árin líka
Posted in personal | 1 Comment »
July 24th, 2009
Það er mikið búið að gera síðustu dagana í Ásveginum. Frá því við fengum afhent á miðvikudaginn fyrir rúmri viku er búið að mála megnið af herbergjunum, rífa 2 veggi, byggja 2 veggi, rusla út 300kg þungu baðkari, gera baðherbergið fokhelt, fræsa upp úr gólfinu fyrir hita, setja hita í gólfið, flota gólfið og pússa alla nýju veggina og ganga frá vatnskassanum fyrir nýja klósettið. Flutningar standa svo til á morgun en það tekur einhverja daga í viðbót að koma baðherberginu í endanlegt horf og það er ekki hægt að sparla og mála nýju veggina alveg strax þannig að svefnherbergið er ekki alveg nothæft strax. Við höfum svo verið að safna tilboðum í nýjar innihurðir og skáp. Það eru svo allar græjur fyrir baðið tilbúið til uppsetningar og bíður út í bílskúr og búið að velja flísar á gólf og veggi. Næst vonandi að klára þetta á næstu viku og ganga frá flestu fyrir verslunarmannahelgi. Inn í þetta allt datt svo að Öldugrandinn var afhentur til nýja eigandans í vikunni með milligöngu Hauks Freys sérlegs umboðsmanns míns á SV-horninu.
En á morgun eru flutningar!
Posted in personal | No Comments »
July 9th, 2009
Nú er ekki nema tæp vika í afhendinguna á nýja húsnæðinu okkar. Þriggja mánaða skoðun og sprauta fór eitthvað misvel í Hartmann og hann er búinn að borða lítið og vera ferlega orkulítill síðustu daga. Það er hins vegar búið að ákveða liti á nýja húsnæðið og leggja grunn að ýmsum aðgerðum, allt frá flutningum að steypusögun. Planið er s.s.:
14. júlí: lesta búslóð úr geymslu í Reykjavík.
15. júlí: fá afhentan Ásveginn, hefja málningu og baðframkvæmdir.
19. júlí: Tæma geymslu í Tjarnarlundi og flytja í Ásvegi.
25. júlí: Tæma íbúð í Tjarnarlundi (kl 14:00, allir velkomnir!) með aðstoð góðs fólks og lyftara!
1. ágúst: Afhenda Tjarnarlund til leigjenda.
1. september: Afhenda Öldugranda til kaupanda.
Svona til að toppa þetta stefnum við á suðurferð á morgun, heilsa upp á Ömmuna í Reykjavík og koma svo við á fjölskyldumóti í Borgarfirðinum á leiðinni til baka á laugardag. Svo þarf ég að keyra aftur suður á þriðjudaginn til að tæma geymsluna og strax til baka daginn eftir. Ágætt að bensínið er ekki dýrara en það er…
Posted in personal | 1 Comment »